
Meðferðaraðilar
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um EMDR meðferðaraðila sem þú getur leitað til. Hafðu í huga að einungis fagaðili með sérþekkingu á EMDR getur veitt þessa þjónustu. Einnig er mikilvægt að finna réttan aðila sem hentar þér og þú treystir.
Að velja EMDR meðferðaraðila
EMDR meðferð skal eingöngu fagaðili veita sem hefur hlotið sérþjálfun í EMDR meðferð. Gefðu þér tíma til að spyrja meðferðaraðilann um þjálfun hans, reynslu og árangur af að beita EMDR meðferð, áður en meðferð hefst.
Meistarapróf og löggilding á geðheilbrigðissviði skilyrði
Ströng inntökuskilyrði eru til að komast í viðurkennda þjálfun í EMDR meðferð. Viðkomandi þarf að hafa löggildingu sem meðferðaraðili á geðheilbrigðissviði og hafa að lágmarki lokið meistaragráðu á því sviði.
Reynsla og þekking á EMDR meðferð mikilvæg
Vertu viss um að meðferðaraðilinn hafi reynslu af og treysti sér til að meðhöndla þitt tiltekna vandamál. Að auki er mikilvægt að þú og meðferðaraðili þinn getið unnið vel saman. Árangur í meðferð byggir á samspili milli meðferðaraðila, skjólstæðings og meðferðarforms. Ef þú telur að þér sé betur borgið annars staðar hikaðu ekki við að leita annað.
Athugið að svokallað ,,EMDR námskeið fyrir dáleiðendur" á vegum
Dáleiðsluskóla Íslands uppfyllir EKKI kröfur um þjálfun í EMDR meðferð.
Finna EMDR meðferðaraðila
EMDR á Íslandi staðfestir að þeir meðferðaraðilar sem tilgreindir eru á þessari vefsíðu hafa lokið tilhlýðilegri þjálfun í EMDR-fræðum og eru með löggildingu á sínu sviði. Það skal tekið fram að þrátt fyrir að neðangreindir aðilar hafi lokið þjálfun samanber yfirlit hér að neðan þá tekur EMDR á Íslandi og þar með talið þessi vefsíða enga faglega ábyrgð á að meðferðinni sé beitt rétt.
Hér má lesa um skilyrði fyrir þjálfun og hæfnivottun á EMDR meðferðaraðilum.
Oddný Jónsdóttir
Klíniskur félagsráðgjafi og Para- og fjölskyldumeðferðarfræðingur
EMDR meðferðaraðili
Paola Cardenas
Sálfræðingur og fjölskyldufræðingur
EMDR meðferðaraðili, Börn og unglingar
Ranveig Tausen
Sálfræðingur
EMDR meðferðaraðili, Fullorðnir, Fjar og staðarviðtöl, Hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili
Sigríður Björnsdóttir
Sálfræðingur
EMDR meðferðaraðili, Hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili, EMDR handleiðari
Sigríður J. Sigurjónsdóttir
Sálfræðingur
EMDR meðferðaraðili, Hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili
Sigríður Karen Bárudóttir
Sálfræðingur og sérfræðingur í klínískri sálfræði og réttarsálfræði
EMDR meðferðaraðili, Hæfnivottaður EMDR meðferðaraðili, Börn og unglingar, EMDR handleiðari
Soffía Elín Sigurðardóttir
Barnasálfræðingur
EMDR meðferðaraðili, Börn og unglingar
Solveig Klara Káradóttir
Hjúkrunarfræðingur, Dipl. Geðhjúkrun, dáleiðari
EMDR meðferðaraðili
Steinunn Anna Sigurjónsdóttir
Sálfræðingur
